1660
Útlit
Ár |
Áratugir |
Aldir |
Árið 1660 (MDCLX í rómverskum tölum) var 60. ár 17. aldar og hlaupár sem hófst á fimmtudegi samkvæmt gregoríska tímatalinu en sunnudegi samkvæmt júlíska tímatalinu sem er tíu dögum á eftir.
Ísland
[breyta | breyta frumkóða]- 3. nóvember - Kötlugos hófst og fylgdu því miklir jarðskjálftar og jökulhlaup. Gosið stóð fram á vetur.
- Melódía, handrit með lögum og textum var ritað.
- Tvö hollensk skip versluðu síðast í Flatey á Breiðafirði. Heyrist ekkert um kaupskipaferðir næstu 120 árin.
Fædd
[breyta | breyta frumkóða]- 30. ágúst - Steinn Jónsson Hólabiskup (d. 1739).
Dáin
[breyta | breyta frumkóða]- 2. júní - Jón Gissurarson, skólameistari í Skálholti og á Hólum.
- Gísli Einarsson, prestur í Vatnsfirði og skólameistari í Skálholti. (f. 1571)
Erlendis
[breyta | breyta frumkóða]
- 13. febrúar - Karl 11. varð konungur Svíþjóðar, 5 ára gamall, eftir lát föður síns Karls 10.
- 16. mars - Langa þingið á Englandi var leyst upp.
- 23. apríl - Svíþjóð og Pólland gerðu með sér Olivasáttmálann.
- 27. maí - Svíar og Danir gerðu með sér Kaupmannahafnarsáttmálann sem batt endi á Karls Gústafsstríðin og Danir endurheimtu Þrándheim og Borgundarhólm.
- 29. maí - Konungdæmið var endurreist í Englandi með krýningu Karls 2..
- 24. júlí - Mikill bruni varð í Konstantínópel; yfir 40.000 létust og 280.000 byggingar brunnu.
- 14. september - Pólsk-litáíska samveldið bar sigurorð af Rússlandi í 13 daga orrustu í Líúbar í Úkraínu nútímans.
- 18. október - Friðrik 3. Danakonungur kom á einveldi í Danmörku með friðsamri hallarbyltingu.
- 28. nóvember - Konunglega enska vísindafélagið (The Royal Society of London for the Improvement of Natural Knowledge) var stofnað í London. Félagið telur sig vera elsta lærdómsfélag heims sem enn er starfandi.
Ódagsettir atburðir
[breyta | breyta frumkóða]Fædd
[breyta | breyta frumkóða]- 26. apríl - Henrik Ochsen, danskur embættismaður sem var stiftamtmaður Íslands og Færeyja (d. 1750)
- 2. maí - Alessandro Scarlatti, ítalskt tónskáld (d. 1725).
- 28. maí - Georg 1. Bretlandskonungur, (d. 1727)
- 30. ágúst - Steinn Jónsson Hólabiskup (d. 1739).
- September - Daniel Defoe, enskur rithöfundur og blaðamaður (d. 1731).
Dáin
[breyta | breyta frumkóða]- 2. febrúar - Govert Flinck, hollenskur málari (f. 1615).
- 13. febrúar - Karl 10. Gústaf Svíakonungur (f. 1622).
- 6. ágúst - Diego Velásquez, spænskur listmálari (f. 1599).