Fara í innihald

AMD

Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Advanced Micro Devices, Inc.
Rekstrarform Almenningshlutafélag
Stofnað Fáni Bandaríkjana Kaliforníu (1969)
Staðsetning Fáni Bandaríkjana Sunnyvale, Kaliforníu
Lykilpersónur Lisa Su forstjóri,

Mark Papermaster (tækniþróunarstjóri),
Jerry Sanders stofnandi

Starfsemi Örgjörvar, hálfleiðarar
Vefsíða www.amd.com

Advanced Micro Devices, Inc. (eða AMD; NYSEAMD) er bandarískt fyrirtæki sem framleiðir örgjörva og myndgjörva (GPU), FPGA og áður hálfleiðara. Öll framleiðslan er byggð á hálfleiðurum, og áður átti AMD eigin verksmiðjur líkt og helsti samkeppnisaðilinn, Intel. Seinna urðu verksmiðjur fyrirtækisins að fyrirtækinu GlobalFoundries sem framleiðir hálfleiðara fyrir ýmis fyrirtæki.

AMD var stofnað af Jerry Sanders og fleiri tæknimönnum árið 1969. Aðalframleiðsluvörur fyrirtækisins voru í fyrstu minnisrásir og aðrir íhlutir fyrir tölvur. Árið 1975 hóf AMD innreið sína á örgjörvamarkaðinn í samkeppni við Intel. Snemma á 21. öld óx fyrirtækið hratt. Það naut sterkrar stöðu á einkatölvumarkaðnum með örgjörva á borð við Athlon og Opteron. Síðar lenti fyrirtækið í erfiðleikum þar sem því gekk illa að halda í við hraða þróun á markaðnum. Það rétti úr kútnum seint á 2. áratug 21. aldar með innrásarverðlagningu og velgengni Ryzen-örgjörvanna.[1] Árið 2022 tók AMD í fyrsta sinn fram úr Intel í markaðsvirði.[2][3]

Tilvísanir

[breyta | breyta frumkóða]
  1. „AMD ascending: How Ryzen CPUs snatched the computing crown from Intel“. PCWorld (enska). 31. mars 2020. Sótt 31. mars 2020.
  2. „AMD's Market Cap Surpasses Intel for the First Time in History“. Tom's Hardware (enska). 16 febrúar 2022. Sótt 16 febrúar 2022.
  3. „How AMD became a chip giant and leapfrogged Intel after years of playing catch-up“. CNBC (enska). 22 nóvember 2022. Sótt 22 nóvember 2022.