Fara í innihald

Heba

Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu

Heba (forngríska: Ἥβη) er í grískri goðafræði gyðja æskunnar. Hliðstæða hennar í rómverskri goðafræði er gyðjan Juventas. Heba er dóttir Seifs og Heru og þjónaði guðunum til borðs á Ólympstindi og færði þeim guðaveigar en síðar hefur hún verið nefnd hreinlætisgyðjan en arftaki hennar í þjónustu guðanna var tróverski prinsinn Ganýmedes.