Patrick Ewing
![]() Ewing árið 2021 | |
Persónulegar upplýsingar | |
---|---|
Fæðingardagur | 5. ágúst 1962 Kingston, Jamaíka |
Þjóðerni | Jamaískur / bandarískur |
Hæð | 213 cm (7 ft 0 in) |
Þyngd | 116 kg (256 lb) |
Körfuboltaferill | |
Háskóli | Georgetown (1981–1985) |
Landslið | Bandaríkin (1984, 1992) |
Leikferill | 1985–2002 |
Leikstaða | Miðherji |
Þjálfaraferill | 2002–nú |
Liðsferill | |
1985–2000 | New York Knicks |
2000–2001 | Seattle SuperSonics |
2001–2002 | Orlando Magic |
Tölfræði á NBA.com | |
Tölfræði á Basketball Reference |
Patrick Aloysius Ewing Sr. (fæddur 5. ágúst 1962) er jamaískur og bandarískur körfuknattleiksþjálfari og fyrrum leikmaður. Á 17 ára ferli sínum sem atvinnumaður í NBA deildinni er hann þekktastur fyrir veru sína hjá New York Knicks þar sem hann lék í 15 ár en síðustu tvö tímabil sín lék hann með Seattle SuperSonics og Orlando Magic. Ewing er almennt talinn einn af bestu miðherjum í sögu NBA og var lykilleikmaður í velgengni Knicks á tíunda áratugnum er liðið fór tvívegis í úrslit deildarinnar (1994 og 1999).[1]
Áður en hann varð atvinnumaður lék Ewing í fjögur ár fyrir Georgtown háskólann. Þrívegis komst liðið í úrslit NCAA meistarakeppninar og varð einu sinni meistari, árið 1984. Árið 2008 útnefndi ESPN hann 16. besta háskólakörfuboltamann allra tíma.[2]
Ewing var fæddur á Jamaíku en fékk seinna bandarískan ríkisborgararétt og lék með landsliði Bandaríkjanna á tvennum Ólympíuleikum, 1984 og 1992, og vann gull á báðum.[3]
Hann var valinn ellefu sinnum í Stjörnuleik NBA-deildarinnar og í sjö sinnum í lið ársins. Árið 1996 var hann valinn einn af 50 bestu leikmönnum í sögu NBA og sem einn af 75 bestu leikmönnum í sögu NBA árið 2021.[4][5]
Titlar
[breyta | breyta frumkóða]Georgetown
[breyta | breyta frumkóða]- NCAA háskólameistari: 1984
New York Knicks
[breyta | breyta frumkóða]- McDonald's meistaramótið: 1990
Landslið Bandaríkjanna
[breyta | breyta frumkóða]- Ólympíuleikarnir: 1984, 1992
- Ameríkuleikarnir: 1992
Tilvísanir
[breyta | breyta frumkóða]- ↑ Archived at Ghostarchive and the Wayback Machine: „Patrick Ewing's number retired at MSG“. NBA. 26. mars 2011. Sótt 17 júlí 2016 – gegnum YouTube.
- ↑ „25 Greatest Players In College Basketball“. ESPN.com. 8. mars 2008. Afrit af uppruna á 23 apríl 2022. Sótt 30 janúar 2014.
- ↑ „Patrick Ewing Bio“. NBA.com. NBA. 8 febrúar 2015. Afrit af upprunalegu geymt þann 21 febrúar 2007. Sótt 17 júlí 2016.
- ↑ „NBA's 75 Anniversary Team Players | NBA.com | NBA.com“. www.nba.com. Afrit af uppruna á 17 febrúar 2022. Sótt 20 október 2021.
- ↑ „50 Greatest Players in NBA History“. Basketball Reference. 8 febrúar 2015. Afrit af uppruna á 3. september 2022. Sótt 17 júlí 2016.