Spjall:L-listinn
Bæta við umræðuMá bjóða þér þrætuepli?
[breyta frumkóða]Ég set þessa athugasemd hér inn því ég vil ekki gera einhverjar gloríur eins og að taka þátt í einhverju breytingastríði eða vera með önnur leiðindi. Afsakið frekjuna í mér en mér líður eins og fyrsta málsgreinin í þessari grein er bara umorðaður kosningaáróður sem mér finnst hreinlega að mætti endurskrifa eða bara sleppa.
- Hvað er málið með allar þessar „gæsalappir“?
- Hvar er „hér“? –Það þarf að alþjóðavæða betur.
- Hvernig getur þetta verið framboð en ekki stjórnmálaflokkur?
Ég ætla ekki að taka af skarið sjálfur að eyða þessari málsgrein úr greininni fyrr en það hefur farið fram einhver umræða. A.m.k. ekki strax. :)
--Stefán Vignir Skarphéðinsson 24. mars 2009 kl. 18:54 (UTC)
Sæll. Fyrsta málsgreinin var komin svona áður en ég byrjaði að bæta við. Hún er samt ekki ósvipuð í uppsetningu og fyrsta málsgrein hjá Borgarahreyfingunni. Ég tek þetta ekki sem kosningaáróður, en viðurkenni það að ég er einn af meðlimum framboðsins.
- Gæsalappir nota ég til þess að eitthvað sé hægt að setja um framboðið án þess að því sé eytt sem kosningaáróðri. Beinar tilvísanir í síðu framboðsins.
- „hér“ er inni í tilvitnun. Það á við um Ísland að sjálfsögðu. Ef tilvitnunin stenst ekki kröfur wikipedia þá fer hún.
- Frjáls framboð hafa oft boðið fram á Íslandi, t.d. T-listinn sem var framboð óháðra í suðurkjördæmi 2003. Ekki var um flokk að ræða þar, og oft eru ekki flokkar sem bjóða fram til sveitastjórnakosninga.