Steven Wilson


Steven John Wilson (f. 3. nóvember í London 1967) er enskur rokktónlistarmaður. Hann er hvað þekktastur fyrir hljómsveit sína Porcupine Tree en hefur tekið þátt í ýmsum hljómsveitum og verkefnum (No-Man, Blackfield). Hann hefur unnið sem upptökustjóri fyrir hljómsveitir eins og Opeth og endurhljóðblandað plötur frá m.a. King Crimson, Jethro Tull, [1], Tears for Fears, Gentle Giant og Yes. Á sólóferli sínum hefur hann búið til framúrstefnutónlist og framsækið rokk en á síðari árum hefur hann farið meira í aðgengilegri átt að poppi.
Wilson fékk verðlaun fyrir bestu plötu ársins á Progressive Music Awards verðlaunaafhendingunni árið 2015 fyrir plötuna Hand. Cannot. Erase.[2]
Með plötunni The Overview (2025) hélt hann hins vegar aftur í löng framsækin tónverk í þemaplötu um geiminn. [3] Platan fór upp í 1. sæti í rokk og metal-plötulistanum í Bretlandi [4] og á topp plötulistans í Þýskalandi. [5]
Wilson er þekktur fyrir að koma fram á sviði berfættur en honum þykir þægilegra að geta skipt um gítareffekta með tánum.
Sólóplötur
[breyta | breyta frumkóða]- Insurgentes (2008)
- Grace for Drowning (2011)
- The Raven That Refused to Sing (And Other Stories) (2013)
- Hand. Cannot. Erase. (2015)
- 4 1/2 (2016)
- To the Bone (2017)
- The Future Bites (2021)
- The Harmony Codex (2023)
- The Overview (2025)
Aðrar skífur
[breyta | breyta frumkóða]- Cover Version (2014) - Ábreiður og frumsamin lög
- Transience (2016) - Safnplata
Tenglar
[breyta | breyta frumkóða]Tilvísanir
[breyta | breyta frumkóða]- ↑ Steven Wilson - Biography Allmusic. Skoðað 2. maí, 2016
- ↑ Singer Steven Wilson crowned prog rock king BBC, skoðað 2. maí, 2016.
- ↑ Steven Wilson - Biography Allmusic.com
- ↑ Rock and metal albums Officialcharts.com, sótt 21. mars 2025
- ↑ Overview Offizellecharts.de, sótt 21. mars, 2025